Að leggja á.
Hvað nefndist verkið við að setja reiðing og klyfbera á hest (að leggja á t.d.)? Var venja að tveir menn ynnu saman að því, ef tök voru á? Var sérstaklega fyrir því séð, að reiðingur risi nóg að framan á framlágum hrossum (hvernig, stungið undir t.d.)? Hvað var það nefnt, ef reiðingur reis ekki nóg á hrossi (að hann grúfði t.d.)? Hvað var verkið nefnt við að festa gjarðir (að girða á t.d.)? Unnu tveir menn að því í sömu atrennu eða á víxl til hlífðar við hrossið, er á var girt? Voru aðeins hendur notaðar við verkið (ekki hné t.d.)? Lýsið hnútum.
Lýsið tengingu lestar (hnýtt í tagl, taumlykkja fest á klyfberaklakk, bogabönd t.d.)? Var nokkur viss regla um slaka á taumum? Var nokkuð hnýtt við klyfberaboga eða sett á klakka á lausri lest (reipi t.d.)? Var eitthvert ákveðið kall notað, er lagt var af stað með lest (ho, ho, ho, o.s.frv.)?

