Að leggja reipi.
Hvað nefndist verkið við að leggja heyreipi á teig til að sæta (sáta) á það hey til hirðingar? Lýsið verkinu við að leysa úr reipi og leggja það á jörðina. Hvort kastaði maður frá sér töglum eða högldum við verkið? Var gætt að því að hafa jafnan svipað bil milli tagla, er búið var að leggja reipið.

