Að raka af hrossi
Hvað nefndist starfið við að nema taglhár og faxhár af hrossi (að raka af eða annað)?
Á hvaða árstímum var það gert? Lýsið því sérstaklega á hvern hátt þetta var háð því hvort um gjafahest (reiðhest) eða útigangshross var að ræða.
Lýsið aðferðinni við að raka af hrossi og nefnið áhöld er notuð voru.
Var miðað við það á hrossinu sjálfu hve mikið þótti hæfilegt að nema af tagli?
Var það á hvers manns færi að raka t.d. af reiðhesti? Kunna menn frá því að segja að rakað hafi verið af reiðhestum eftir ákveðinni reglu (klipptar manir (rákir) á lend, hrygg, nára, háls, brjóst, haus o.s.frv.? Lýsið hvernig gengið var frá hrosshári til geymslu (litum ekki blandað saman, bundið í knippi o.s.frv.).
Segið sérstaklega frá því ef um það var að ræða að hrosshár gengi kaupum og sölum.
Gerið grein fyrir mismun hrosshárs miðað við taglhár og faxhár, blöndun hrosshárs í vinnu og sérstaklega ef t.d. um faxhár eða taglhár var talið henta hvort fyrir sig til sérstakra nota.

