Aðrir orðaleikir.

Undir þetta falla atriði eins og að geta hve margar árar eru á borð, að gefa skip, að horfast í augu, að geta króks og kings, að leggja í lófa karls, gettu margs í mínum lófa, fagur fiskur í sjó, Völuspá, Nípuleikur. Menn eru beðnir að lýsa þessum og öðrum orðaleikjum og greina frá formálum, sem þeir byggjast á. Skylt þessu er t.d.: "Könguló, könguló, vísaðu mér á berjamó", "Brekkusnigill, boggi", Upp ef þú vilt mér gott, niður ef vill mér illt" o.s.frv. Allur fróðleikur á þessu sviði er vel þeginn. Hér var fjölbreytni furðu mikil og formálar nokkuð breytilegir miðað við hina ýmsu landshluta. Skrifið fyrir alla muni öll þau brot úr formálum, sem ykkur rámar í, en ekki einungis upphafið.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica