Aðstæður við slátt.

Á margbýlisjörðum, þar sem slægjulandi í túnum og á engjum var skipt niður í skákir og teiga, þurfti að marka skil milli slægna, áður en slegið var. Hvernig var það gert (höggvið í mark,t.d.)? Lýsið því. Lýsið slætti á laufengi (víðir). Var þar notaður venjulegur sláttuljár? Lýsið sérstaklega slætti í vatni. Hvernig var sá sláttur frábrugðinn slætti á þurru landi? Var sælst til að slá vatnagróður í álandsvindi? Hvernig var unnið að því að koma ljánni upp á þerrivöll? Segið frá aðstæðum sláttar í túni eða á engjum miðað við það, hvort þurrt var eða rakt í rót. Reyndu menn að nota rekju til sláttar, m.a. með því að slá að nóttu, en taka sér sláttuhvíld um hádaginn? Var farið um þetta ákveðnum orðum. Lýsið þessu.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica