Að tæja og kemba hrosshár
Hver var almenna aðferðin við að búa hrosshár undir spuna (að tæja það, að kemba það)?
Lýsing á tæingu. Var setið við verkið á rúmi eða stól og táið ofan í trog (hrosshárstrog) eða ofan á baðstofupallinn?
Lýsið kembingu hrosshárs.
Lýsið því hvernig hrosshárið var tekið saman í vöndul eða vindil. Hvað nefndist það?
Lýsið því hvar og hvernig vindillinn var festur upp til handspuna.
Hvernig var gengið frá hrosshári er spinna átti það á rokk?

