Að tína grös.
Lýsið grasatínslu. Hvenær var byrjað að morgni? Var yfirleitt við það miðað, ef hægt var, að tína fjallagrös með náttdögg eða í rekju? Hvernig dreifði grasafólkið sér um grasalandið við tínsluna? Hvernig var staðið að því að tína? Hvernig var gengið frá tínupokanum (laus eða í bandi og þá hvernig bundinn)? Var tínupokinn dreginn um grasalandið við tínsluna? Hvernig vann fólk að þessu (hálfbogið, á hnjánum t.d.)? Losuðu allir úr tínupoka í sama grasapoka eða sekk? Hvað þótti hæfilegt magn af nýtíndum grösum í dagsverk eins manns, karls eða konu?

