Annað er efnið varðar.
Lýsið öðru er varðar samantekningu heys með gömlu lagi og ekki er enn fram komið í spurningum. Hvenær hófst það að nota heyýtur, dregnar af hestum, við samantekningu heys á teig. Var notkun á heyýtu eingöngu háð nýjum heyskaparháttum, er upp var tekið að setja upp hey í stóra galta eða lanir eða draga hey í hlöður? Lýsið þessu.
Var nokkur þjóðtrú tengd því er hæfilegt þótti að ljúka slætti eða heyverkum að hausti.?
Kunna menn að segja frá því, að heyjuð hafi verið ísastör?

