Söfnun róta til manneldis

AUKABLAÐ I.

Söfnun róta til manneldis.
Söfnun jurtaróta til lækninga og neyslu var ekki ómerkur þáttur í lífsbaráttu liðins tíma. Hér er óskað eftir að menn skrái þann fróðleik sem þeir kunna skil á um söfnun róta til manneldis. Í því sambandi skal bent á eftirfarandi atriði:
Rótaferðir og ferðabúnaður, aðferðir og áhöld við rótagröft, rætur bundnar í bagga, geymsluaðferðir og matreiðsla róta. Voru rótaferðir bundnar við árstíðir og árferði? Hvenær lögðust rótaferðir niður?
Einstakar sagnir um rótaferðir, utan þessara atriða, eru einnig vel þegnar.

ATH! Sjá nánar undir: Skrá 3a. Rætur og sveppir til manneldis (aukaspurning).


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica