AUKABLAÐ II.
Söfnun ætisveppa.
Um söfnun ætisveppa hér á landi eru fáskrúðugar heimildir. Það eru vinsamleg tilmæli að á þetta blað verði skráð sú þekking sem mönnum er tiltæk í minni varðandi það efni. Ber það einkum að athuga eftirfarandi atriði:
1. Hvaða sveppir voru notaðir til manneldis (lýsing og heiti tegunda)?
2. Var gerð rækilega sveppaleit eða hending látin ráða um hvað hirt var?
3. Hvernig voru sveppir matreiddir?
4. Hvað hét gróhylki merarosts (físisveppur t.d.)
5. Hvað hétu gróin (kerlingareldur t.d.). Voru þau að nokkru nýt og að hvaða leyti varasöm?
ATH! Sjá nánar undir: Skrá 3a. Rætur og sveppir til manneldis (aukaspurning).

