Fuglaveiðar með snörum

Aukablað.

Um aldaraðir iðkuðu Íslendingar fuglaveiðar með snörum. Margar gerðir af fuglasnörum hafa verið í notkun til sjávar og sveitar. Lýsið hér fuglasnörum, svo sem föng eru á. Hvaða efni var notað í snörur? Hvernig var það unnið? Hvernig var sjálf snaran gerð? Við hvað var hún tengd (hlera, skaft, vað t.d.)? Var snörunni kastað á fuglinn eða um hann vitjað? Festi fuglinn fætur eða höfuð í snörunni? Var notað agn? Hverskonar? Getið um heiti á snörum og einstökum hlutum þeirra. Teiknið snörur ef tök eru á. Hvaða sjávarfuglar voru veiddir í snörur? En landfuglar (rjúpur, kjóar t.d.)?

ATH! Sjá nánar undir: Skrá 6a. Fuglaveiðar með snörum.




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica