Bænum lokað

Var það algild regla að læsa bænum undir nóttina í vökulok? Hver annaðist það (bóndinn t.d.)? Lýsið á hvern veg háttumál voru breytileg miðað við árstíma og störf fólksins. Voru börn látin hátta fyrr en fullorðið fólk? Hvernig var um það rætt er hæfilegt þótti að fara að hátta (mál að fara að hátta, draga sig í háttinn, láta rúmið geyma sig, fara að hypja sig í rúmið o.s.frv.)? Hvað nefndist athöfnin sjálf (að hátta, skríða í bólið, skríða í háttinn, fara að kúra, fara að lúra, klæða sig úr, afhýða sig, afklæða sig, tína af sér spjarirnar o.s.frv.)? Hvað nefndist það ef fólk háttaði venju fremur snemma (að gera sér langa nótt t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica