Bein sem leikföng.

Lýsið, hvernig bein húsdýra voru notuð í barnaleikjum. Segið frá heitum beina. Lýsið, hvaða hlutverki, hvert einstakt bein gegndi, a) bein úr sauðfé, b) geitfé, c) nautpeningi, d) hrossum. Voru bein notuð sem leikföng öðruvísi en sem tákn ákveðinna dýra (í hleðslur, leggjalaupur o.s.frv.)? Voru bein sjávardýra, svo sem sela og hvala, notuð í leikjum og þá á hvern hátt?
Voru fiskbein notuð óunnin til leikja (kellingaprjónar eða baulubein t.d.)? Lýsið því. Lýsið leikföngum, sem tálguð voru úr ýsubeinum eða öðrum beinum. Segið frá nöfnum þeirra og leikjum með þau.
Voru bein eða fjaðrir fugla notuð í leikjum? Hvernig?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica