Skrá 11. Gestakomur

Borðsiðir

Var fast orðaval notað, er gestum voru boðnar góðgerðir (Má ekki gera þér eitthvað gott, Þú stendur við og þiggur eitthvað t.d.)? Svaraði gesturinn einnig með föstu orðavali (Það er óþarfi, ég er ekki langt að rekinn t.d.)? Hvaða orð voru um það að bera gesti mat (vinna beina, standa fyrir beina, bera á borð o.s.frv.)? Hvernig var gestum sagt að taka til matar (Gerðu svo vel t.d.)? Hvernig svöruðu þeir (Gefðu mér í guðsfriði matinn t.d.)? Þótti óviðeigandi að bera gestum skál eða bolla barmafull? Var borðið á ílátinu nefnt gestaborð? Lásu gestir borðbæn? Hvernig var hún? Signdu gestir sig, áður en þer tóku til matar? Hvar mötuðust gestir? Fór það eftir mannvirðingum? Hvernig var borið á borð? Sat húsbóndinn til borðs með gesti sínum? Voru dæmi þess, að heimilisfólk tæki af mat sínum handa gesti, ef hann kom, þegar búið var að skammta? Spáði það einhverju, ef gestur hnerraði yfir mat sínum (ofan í mat sinn)? Sögðu húsfreyjur eitthvað sérstakt, ef gesti svelgdist á mat (Ekki sá ég svona eftir þessu ofan í þig t.d.)? Þótti betur fara á, að gestur leifði af mat sínum? Hvaða orð voru um það (hæverskubiti, gestahæverska, gestalæti, gestasiður, að eta upp í mold t.d.)? Var orðtakið "að sitja mann af bakkastokkum" notað um það, er beðið var með að skammta, þar til gestur var farinn?
Hvenær þakkaði gestur fyrir sig, um leið og hann lauk við að borða, um leið og hann fór eða hvorttveggja? Hvernig þakkaði hann fyrir sig (Guðlaun fyrir matinn t.d.)? Hvernig var svarað (Guð blessi þig, Haltu til góða, Fyrirgefðu o.s.frv.)? Var húsfreyjunni þakkað fyrr en bóndanum?Hvað var um það sagt?



Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica