Brekán.

Hvað nefndust rúmábreiður, sem ekki voru salúnsofnar (brekán t.d.)? Voru salúnsofnar ábreiður aldrei nefndar brekán ? Segið frá vefnaðarvend brekána (einskefta, vaðmál). Var venja að tala um brekánsvefnað? Lýsið því. Segið frá uppistöðu (efni, gerð). Segið frá ívafi (efni, gerð). Lýsið litum og litarefnum. Segið frá munstrum (röndótt, köflótt, tennt). Var mismunandi mikið gefið upp í vefinn miðað við mismunandi not (rúmbrekán, ferðabrekán)? Segið frá vefjarskeið og skyttu, sem notaðar voru við brekánsvefnað. Var ef til vill ekki notuð skytta, heldur annað áhald í stað hennar? Lýsið því. Segið frá notum á gömlum og slitnum brekánum. Hvenær lagðist niður að vefa og nota brekán með einskeftu- eða vaðmálsvend á himilum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica