Brýnsla, denging, álagning ljás.

Lýsið brýnslu sláttumanna á ljánum. Segið frá ljábrýnum og einstökum tegundum ljábrýna. Vita menn dæmi þess, að íslenskt berg hafi verið notað í brýni? Klufu menn innflutt brýni niður? Hvernig? Sættu brýni nokkurri sérstakri meðferð til þess betur biti undan þeim? Eru dæmi þess, að sláttumenn hefðu sérstakan brýnisstokk með vatni hjá sér í slægjunni? Hvar geymdu menn brýnið milli nota í slægjunni? Var talað um það, að mönnum biti vel eða illa og einhverjar vissar skoðanir um orsakir þess? Nefndist tíminn milli þess, að sláttumaður brýndi ljá sinn og til þess hann brýndi næsta sinn einbrýna (eða annað)? Var stundum miðað við þetta sem tímalengd (að slá nokkrar brýnur, t.d)? Var börnum eða unglingum jafnan kennt að standa að brýnslu á réttan hátt um leið og þau byrjuðu að slá? Var lögð á það áhersla að fara aldrei frá óbrýndum ljá á teig? Hvað lá við ef útaf var brugðið? Hvernig skildu sláttumenn við orf og ljá, er gengið var t.d. til matar? Hvernig var skilið við orf og ljá að kvöldi?
Var algengt að dengja ljái í stað þess að brýna þá? Lýsið dengingaráhöldum (steðja og ljáklöppu). Voru þetta stundum heimasmíðaðir hlutir? Lýsið dengingu. Hvar var að henni unnið? Var vandhæfi á því að dengja ljá til bits.
Lýsið álagningu ljás. Var ljárinn brýndur að kvöldi eða morgni? Var hverfisstokkur e.t.v. borinn með sér í teiginn til hægðarauka? Hvenær er byrjað að smíða fótstig á hverfistokka? Var jafnan haft vatn á hverfissteininum? Voru hverfissteinar misjafnlega fallnir til að gefa gott bit eftir tegundum?




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica