Búskaparleikir.

Lýsið búum og búskaparleikjum barna. Hafið þetta m.a. í huga: Leiksvæði, lýsing húsa og fyrirkomulag (íveruhús fólks, peningshús, hlöður o.s.frv), réttir, kvíar, tún, úthagi o.s.frv. Lýsið merkingum gripa og hvernig gripum var fyrir komið í húsum, réttum eða á beit. Lýsið beislum, reiðverum, klyfjabúnaði og öðru, er það efni varðar. Lýsið fóðuröflun og öðrum störfum við bú barna um ársins hring. Lýsið á hvern hátt þetta var breytilegt, t.d. miðað við það, hvort búfénaður barna var bein húsdýra eða skeljar. Hvernig var búið um þennan búfénað barna á vetrum?
Lýsið, hvernig búskaparleikjum barna var háttað í fjölbýli. Lýsið samstarfi barna í búskaparleikjum. Iðka börn enn slíka leiki með gömlum hætti? Lýsið breytingum, sem á þessu hafa orðið.
Lýsið leikjum barna með leikföng innan bæjar (á baðstofugólfi t.d.).


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica