Einkenni lands og lagar

Var nokkurt mark tekið á því gagnvart veðri hversu snemma snjó lagði í fjöll að hausti? Nefndist sú snjókoma nokkuð (haustkálfur, vetrarkálfur t.d.)? Er vetrarkálfur e.t.v. eitthvað allt annað?
Var mark tekið á því gagnvart veðri hvernig eða hve lengi einstakar fannir lágu á fjöllum? Var nokkurt mark tekið á því er blotasnjór veltist í hnyklum eftir fönnum (snjóveltur)? Var á einhvern annan veg tekið mark á snjó, hrími eða frosti gagnvart veðri?
Var tekið mark á árniði, lækjarniði eða fosshljóði gagnvart veðri? Var mark tekið á vatnshæð í ám, lækjum, lindum eða vötnum? Var mark tekið á sjávarhljóði eða mareldum við sjó? Gat hrun í jökli eða fjallshlíð boðað veðurbreytingu? Þekktist nokkur trú varðandi vermistein í jörð í nánd vors eða sumars?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica