Einkenni loftsins

Ský og blikur eru ein af þeim auðkennum sem vísa til veðurs. Lýsið hvernig menn lásu ský og blikur í veðurspám sínum og sérstaklega hvernig þetta var staðbundið miðað við fjöll og fjallgarða sjóndeildarhringsins. Eru netjuský (Maríutása) á einhvern veg tengd veðurspám?
Þoka á skylt við ský. Á hvern veg vísaði hún til veðurs, t.d. miðað við þokuhús á fjalli eða þokubelti í fjallshlíð? Lýsið hvernig hitauppsláttur af jörð eftir heitan sumardag tengdist veðurspám. Lýsið hvernig hillingar tengdust veðurspám.
Lýsið hvernig regn tengdist veðurspám, t.d. þegar rigndi svo mikið að bólaði upp af hverjum polli. Hvað nefndist það og hver veðurspá var í því fólgin? Þekkjast orðin þerriskúr og þerridropar um litla úrkomu. Var mark tekið á geislabroti í skýjum gagnvart veðri (regnbogi, hafgall)? Hvað þá um rosabaug og aukasólir, er svo nefndust (gíll, úfur)? Var nokkur veðurspá fólgin í þrumum og eldingum?
Nefnið hvaðeina sem hér hefur ekki verið minnst á.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica