Einskefta.

Hvað nefndist vefnaðarvendin? Fór það e.t.v. að einhverju leyti eftir efni í uppistöðu og ívafi (alull, ull og útlent garn, algarn)? Var t.d. orðið tvistur eða tvistdúkur notað um einskeftu, sem var að öllu leyti úr útlendu garni? Segið frá efni og gerð uppistöðunnar, miðað við mismunandi einskeftudúka. Lýsið litum (sauðalitir, jurtalitir, útlendir litir). Segið frá munstrum. Voru þau ef til vill nefnd ákveðnum nöfnum? Var litum í einskeftuvoð raðað niður fyrirfram með því að vinda þá á spjald? Hvað var það nefnt (að munstra, t.d.)? Lýsið mismunandi einskeftudúkum, eftir því sem hægt er:
a) kjóladúkur,
b) millipilsadúkur,
c) sjaldúkur,
d) svuntudúkur,
e) milliskyrtudúkur,
f) fatafóður,
g) efni í kastföt (t.d. mjaltapils),
h) sængurveradúkur,
i) borðdúkur,
j) húsgagnaáklæði,
k) gluggatjöld,
l) efni til útsaums,
m) efni í skyrsíur,
n) efni í bakleppa á hross undir reiðing,
o) segldúkur,
p) tjalddúkur,
q) pokadúkur,
r) annað einskeftuefni til fatnaðar, rúmfata eða búshluta.
Voru einskeftudúkar sendir brott til litunar eða til að þrykkja í þá munstur?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica