Skrá 11. Gestakomur

Fararsnið

Höfðu gestir viss orðtök uppi, er þeir fóru að sýna á sér fararsnið (Það er of snemmt að biðja að lofa sér að vera t.d.)? Voru viss orðtök notuð, er gestir voru hvattir til lengri viðstöðu (Ekki gráta börnin heima, Ekki springa júgrin á kúnum, Þú nærð háttum, þótt þú dokir lengur t.d.)? Þótti sjálfsagt, að húsbóndinn fylgdi gesti til dyra? Var sagt, að húsbóndinn vildi ekki afturkomu gests, sem hann fylgdi ekki til dyra? Var rætt um það með föstu orðavali að fylgja gesti til dyra (Ég ætla ekki að láta þig fara með vitið úr bænum, Ég ætla að reka út fylgjuna t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica