Fléttað reiptagl

Gerið grein fyrir því hvernig reiptagl varð til. Gerið grein fyrir því hvernig maður mældi í reiptagl (á sjáflum sér t.d.) Hvernig var rakið í það? Gerið grein fyrir litasamsetningu og fjölda þátta (þráða). Hvar var verið við verkið? Hvar var efnið fest upp? Hvernig var undið í hankir? Var lögð áhersla á að fléttað væri þétt og fast?
Lýsið auganu eða smeygnum á enda reiptagls. Hvernig var gengið frá hinum endanum í lok verks?
Gerið grein fyrir mismun legutagla og dráttartagla í reipi. Gerið grein fyrir silum. Voru dæmi þess að tögl væru sviðin við eld til að fá betri áferð, t.d. í sila?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica