Fótaferð
Var orðið rismál notað um ákveðinn tíma morgunsins, ekki fótaferðina sjálfa? Var orðið fótaferð almennt notað um það að rísa úr rekkju? Segið frá fótaferð miðað við mismunandi árstíma og þau störf er að kölluðu á heimilinu. Hver fór fyrst á fætur og vakti fólk til starfa (húsbóndi, húsmóðir)? Var um það talað að vekja ætti sofandi mann með því að taka á fótum hans? Hvaða orðum var farið um mann sem erfitt átti með að ná sér úr rúmi að morgni (rúmlatur, rúmleti t.d.)? Var um það rætt að maður ætlaði að dægra ef hann reis seint út rekkju? Hvað var það nefnt ef maður vaknaði mjög snögglega og reis þegar upp (að vakna með andfælum t.d.)?
Voru föst orðasambönd notuð um það að rísa úr rekkju (að koma sér úr bólinu, klæða sig, tína á sig spjarirnar, kom sér í leppana, koma sér í fötin t.d.)? Átti eitthvað að ganga á móti ef maður "fór í hælinn á sokknum" er hann dró hann á sig? Var því almennt trúað að maður ætti ekki að villast ef hann klæddi sig í öfuga flík? Þekkist það frá eldri tíma að segja það við mann að hann hafi farið með vitlausa fótinn fram úr rúminu ef hann reynist úrillur er kemur fram á daginn? Lýsið á hvern hátt signing og bænagerð komu við fótaferð. Var það almennur siður að byrja hvern dag með því að fara út á stéttina, snúa sér móti austri, signa sig og ganga síðan inn til að bjóða fólki góðar stundir? Var talað um það að maður væri með nóttina í munninum þar til hann hafði nærst að morgni?

