Fótvefnaður.
Kunnið þér að segja frá því, hvernig konur ófu bönd á fæti, og hvað nefndist vefnaðurinn (fótvefnaður t.d.)? Lýsið vinnubrögðum við það, ef hægt er. Hvernig var t.d. unnið í uppistöðu og fyrirvaf? Hvernig var rekið í slönguna? Hvernig var gengið frá höföldum og úr hvaða efni voru þau? Voru fleiri en ein höföld notuð við sama vef til að fá fjölbreyttari munstur? Hvernig gekk konan frá slöngunni er hún óf? Hvernig gekk hún frá fyrirvafi (vatt það á spýtu eða spjald, t.d.)? Hvernig var ívafi slegið í skil? Segið frá litum og vefnaðargerð? Hvernig var gengið frá slöngunni við vefnaðinn? Hvenig vann konan verkið? Í hvað var fótvefnaður einkum notaður? Segið frá slíkum hlutum (sokkaböndum, svuntuböndum, flautaþyrlum o.fl.).
Voru fótofin bönd nefnd eftir munstrum, sem í þau voru ofin (tiglabönd t.d.)?

