Skrá 11. Gestakomur

Fyrirboðar gestkomu

Hvernig óraði menn fyrir gestkomu í svefni eða vöku? Voru viss orð um það höfð (Það dregur úr mér allan mátt, Mér gerir leitt, Það sækir að mér t.d.)? Spáðu húsdýr gestum? Hvernig? Segið yfirleitt frá öllum fyrirboðum gestkomu. Minnist einstakra orða, sem þetta varða (gestasvefn, gestaspjót t.d.). Boðaði það eitthvað, ef fyrsti gestur, sem kom á jólaföstu, var kona? Var haldin gestaskrá um gesti á jólaföstu? Hvað voru þeir nefndir (jólasveinar, jólameyjar t.d.)? Var dregið um þá heimilinu, er jólin gengu í garð? Hvenær? Hvernig? Boðaði það eitthvað, ef fyrsti gestur í vikunni var kona? Var fólki illa við, ef kona var fyrsti gestur eftir brottför heimilismanns í verið?




Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica