Fyrirhyggja
Báru stofur á bæjum nafn af gestum (gestastofa, gestaherbegi)? Hvernig var búnaði þeirra háttað? Voru sérstök gestarúm á bæjum? Hvar voru gestarúm í baðstofum að jafnaði, sem næst glugga eða framstafni t.d.? Voru dæmi þess, að gestir svæfu í kirkjum eða útihúsum (skemmu, hlöðu)? Voru áhöld eða ílát sérstaklega ætluð gestum (spónn, skeið, hnífur, bolli t.d.)? Drógu þau nafn af þeim (gestaspónn, gestabolli t.d.)? Lýsið þessu. Notuðu gestir vasahníf sinn til að matast með? Var vikið að honum með ákveðnum orðum (Hefur maðurinn hníf á sér t.d.)? Voru sérstakir matarréttir, öðrum fremur, ætlaðir gestum? Hverjir? Geymdu bændur vín til að veita gestum (húsvitjanapelinn t.d.)? Voru drykkjarkönnur (gestaraun) látnar standa í bæjardyrum handa gestum og gangandi? Lýsið þeim. Þekkjast sagnir um þær? Voru bæjardyr látnar standa opnar um daga til að fagna gestum?

