Galti, lön o.s.frv.

Hvenær hófst sú verkunaraðferð þurrheys að setja það upp í hey (smá eða stór) úti á teig? Höfðu einstakir bændur þar forystu? Hvað nefnast þessi hey (bólstri, fúlga, galti, lön t.d.)? Hvað nefnist verkið við að gera upp slík hey (að bólstra, galta, lana t.d.)? Voru smíðaðar sérstakar heyýtur, dregnar af hestum, til að færa saman með hey, er sett var upp úti á teig? Hvernig og hvenær hófst notkun þeirra? Lýsið þeim.
Voru mismunandi aðferðir við að verja hey úti á teigum gegn regni (yfirbreiðslur úr striga o.s.frv.)? Voru í byrjun mismunandi aðferðir við að flytja þau hey heim (bundið í bagga, flutt á heygrind, heyvagni, dregið að hlöðu og inn í hlöðu t.d.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica