Girðingar

Var orðið vallargarður notað um garð, sem hlaðinn var um tún? Hvenær hefst það að marki að bændur fari að girða tún sín með hlöðnum görðum eða öðrum hætti? Var gerður greinarmunur á girðingu eftir því hvort hún var gripheld eða fjárheld? Var orðið áheldi notað um girðingu? Lýsið mismunandi hleðsluaðferðum á tún- eða engjagörðum ef um þær var að ræða. Voru garðar hlaðnir úr sniddu með moldfyllingu og snidduhnyðja eða hnallur höfð til að þjappa hleðsluefnið? Voru garðar hlaðnir úr hnaus, kekkjum eða streng? Hvenær fer hleðsla að miðast við það að einn eða fleiri vírstrengir komi þar ofan á? Á hvaða tímabili eru girðingar einkum gerðar með þeim hætti að hlaðnar eru undirstöður (vörður) fyrir girðingastópa úr járni og vír strengdur á milli?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica