Gjafavefnaður.
Voru gjarðir (hnakkgjarðir, söðulgjarðir, yfirgirðinga, klyfberagjarðir) ofnar í vefstól? Lýsið gjarðaefni. Hvernig var það unnið? Hvernig var rakið í uppistöðuna (slönguna)? Segið frá litasamsetningu og vefnaðarvend. Lýsið ívafi (fyrirvafi). Var sérstakt áhald notað í stað skyttu til að bregða ívafi í skilið? Lýsið því. Hvað nefndist það? Með hverju var slegið að ívafi í skili? Lýsið því. Hvað nefndist áhaldið? Lýsið munstrum. Höfðu gjarðir nafn eftir munstrum (oddagjarðir, tenntar gjarðir)? Hvað nefndist gjarðarefnið fullunnið? Hvernig var gengið frá endum á ofnum gjörðum? Lýsið því og öðru, sem efnið varðar.

