Glitvefnaður.
Kunnið þér að segja frá glitvefnaði af eigin raun eða eftir sögnum eldri manna? Hvernig unnu konur t.d. að því að bregða glitmunstrinu í skilið? Unnu tvær konur að því, hvor við sinn jaðar á voðinni? Hafa nokkur glitmunstur eða vefnaðarmunstur yfirleitt geymst á lausum blöðum eða á bókum? Hafa einstakir glitofnir munir (söðuláklæði, rúmábreiður, sessur t.d.) haldist á heimilum til þessa dags? Segið frá því, ef gamlir, glitofnir hlutir eru eignaðir nafngreindum vefurum.
Þekkjast sagnir um konur, sem saumuðu glitmunstur í heimaofna einskeftu? Hefur glitvefnaður verið iðkaður á þessari öld fyrir áhrif frá vefnaðarkennurum (námskeið, skólar)?

