Göngustafir.

Margar gerðir af göngustöfum hafa verið í notkun hér á landi og koma sumir þeirra við sögu í þessari spurningaskrá. Efninu verður sennilega síðar gerð skil í sérstakri spurningaskrá um ferðir og flutninga. Æskilegt væri þó að menn létu hér í té tiltækan fróðleik um göngustafi, mismunandi gerðir stafa, m.a. miðað við brodd, veðra og hólk eða broddfæri einu nafni, húnastafi, og krókstafi, fjallstafi eða fjallastangir, atgerisstafi, vatnastangir, smalastaf, kolluprik o.s.frv. Hér kemur til greina mismunandi lengd stafa, miðað við mismunandi not, stafir með lausum hring, þjóðtrú varðandi stafi og sagnir um stafi. Allur fróðleikur um þetta efni er mikilsverður og kemur síðar að góðum notum.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica