Grasaferð.

Hvenær var að jafnaði farið til grasa (fyrir slátt, eftir slátt t.d.)? Lýsið á hvern hátt grasaferð var tengd öðrum heimilisönnum. Hve margir af heimili fóru í grasaferð? Var það á einhvern hátt tengt aldri heimilismanna eða öðrum störfum á heimilinu? Nefndist fólk, sem að þessu starfaði, einhverju samheiti (grasafólk t.d.)? Fór fólk af mörgum bæjum saman í grasaferð? Var miðað við það að safna ákveðnu magni fjallagrasa? Hve miklum ársforða? Lýsið á hvern hátt förin var tengd veðri (dögg, vætu t.d.)? Hve marga daga var að jafnaði verið í grasaferð, ef farið var í útilegu? Var á einhvern hátt gerður dagamunur í mat er grasafólk kom heim?
Lýsið grasaferðum, þar sem farið var að morgni til grasa og komið heim að kvöldi. Var sérstakur foringi (grasaforingi) fyrir hverjum hópi grasafólks?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica