Gróður jarðar, leikföng úr tré.
Lýsið, hvernig einstakar tegundir af gróðri jarðar voru notaðar sem leikföng eða í leikjum (blómfestar, skyrsíur úr stráum, lokasjóður sem peningar, strá sem blístrur, starkóngur og stardrottning úr stráum o.s.frv). Lýsið verklagi og leikjum.
Lýsið hlutum, sem smíðaðir voru úr tré til leikfanga. Voru mannlíkön (spýtukallar) smíðuð úr tré (sprellikallar, sögunarstrákar t.d)? Hvernig var leik með þau háttað? Voru líkön dýra, fugla eða fiska smíðuð úr tré til leikfanga? Lýsið þeim. Voru skips- eða bátalíkön smíðuð til leikja? Lýsið smíði, bátgerð, stýri, möstrum, seglabúnaði og öðru, er efnið varðar. Voru e.t.v. einnig smíðaðir sjómenn (spýtukallar) á leikbáta barna?
Lýsið öðrum leikföngum smíðuðum úr tré (rella eða erill, skopparakringla, þeytispjald, bogi, gaflok eða píla o.s.frv.).

