Hæruvoð.
Er það þekkt, að hrosshár hafi verið unnið til vefnaðar, í hærusekki, síur, gólfmottur eða aðra hluti? Lýsið vinnu við hæruvoðir, ef tök eru á. Var mismunandi litum blandað saman eða þeir hafðir óblandaðir? Hvernig var hrosshárið tætt (táið eða kembt í kömbum)? Hvernig var það búið undir spuna að öðru leyti (vafið í vindil, fest upp t.d.)? Hvernig voru spunatækin (snælda, rokkur)? Voru mismunandi gerðir af hrosshárssnældum í notkun? Lýsið þeim. Lýsið hrosshársspuna, tvinningu og hnyklum. Lýsið hrosshársvefnaði, uppsetningu litum, munstrum (tennt t.d.), vefnaðarvend og öðru, er efnið varðar.
Voru til sérstök áhöld til að nota við þennan vefnað (vefjarkambur, vefjarskeið, skytta o.s.frv.)? Lýsið því.
Lýsið hlutum ofnum úr hrosshári eftir því sem tök eru á (t.d. hærusekkjum). Eru þekktar sagnir um hluti, sem ofnir voru úr hrosshári og notkun þeirra? Voru einhverjir menn öðrum fremur, sem lögðu fyrir sig þennan vefnað?
Eru dæmi um það, að menn kembdu hrosshár saman við ull í vaðmálsvoðir? Í hvað voru slíkar voðir hafðar (t.d. karlmannaföt eða reiðföt)?

