Skrá 13. Ull og tóvinna I

Halasnælda

Segið frá heitum halasnældu og einstökum gerðum hennar (halasnælda, spunasnælda, þráðarsnælda, tvinningasnælda, hrosshárssnælda o.s.frv.).
Hvað hétu einstakir hlutar halasnældu (snúður, hali, hnokki)? Segið frá efni í snældasnúða (tré, hvalbein t.d.).
Var sælst til þess að hafa snúða á spunasnældu litla og þunga, t.d. úr hvalbeini eða þungri viðartegund (sökkholti)?
Vita menn dæmi þess, að snældur hafi verið með steinsnúðum? Var talað um það, að snælda væri snúðhörð eða snúðlin og þá miðað við þyngd snældusnúðar (sbr. snúðhart og snúðlint band)?
Var algengt að skera snældusnúða út?
Voru sérstök munstur, öðrum fremur, skorin á snældusnúða? Hétu þau eitthvað (sigurlykkja t.d.)?
Var algengt að skera upphafsstafi eigenda og ártöl á snældusnúða? Mátti ekki snúa snældu í höfuð barni? Hvers vegna?
Var snældu snúið yfir dauðvona manni til að létta dauðastríð?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica