Handverkfæri.

Segið frá handverkfærum, sem notuð voru við jarðabætur. Greinið frá nöfnum þeirra. Segið sérstaklega frá þeim, sem voru heimasmíðuð. Önnuðust einstakir smiðir um smíði á t.d. undirristuspöðum? Voru notaðir heimasmíðaðir skerar við að rista fyrir við túnasléttur? Minnast menn einstakra manna, er fundu upp eða smíðuðu áhöld til að auðvelda jarðabótastörf?
Kunna menn að segja frá því eftir annarra sögn, er skóflublöð (stálskóflur) fóru fyrst að flytjast í verslanir og ná útbreiðslu? Kunna menn að segja frá því, er járnkvíslar voru teknar í notkun við jarðabótastörf?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica