Hár.

Segið frá þjótrú varðandi hárvöxt. Var því trúað, að sveipir í höfuðhári boðuðu eitthvað sérstakt? Var nokkur sérstök trú þekkt í sambandi við kollvik (hofmannavik) á höfði? Var nokkur trú þekkt í sambandi við hár á augabrúnum (loðbrýndur maður eða annað)? Hvað nefndist það, ef augabrúnir voru alveg tengdar saman með hárvexti (sambrýndur eða annað)? Var nokkur trú tengd því? Var nokkur trú tengd augnhárum (bráhárum), t.d. varðandi skyggnan mann? Hvað nefndist hárvöxtur á nefi? Var nokkur trú tengd honum? Segið frá annarri trú, sem var tengd hárvexti manna. Til eru einstakar heimildir um það, að hárvöxtur á fótum ætti að boða auðsæld og að ekkert óhreint ætti að komast að manni, sem var með loðinn kross á brjósti og baki. Kannast menn við þá trú.
Segið frá hárskurði eða klippingu hárs hjá mönnum að því, er tekur til þjóðtrúar. Var hárklipping miðuð við það, hvernig stóð á tungli? Mátti hár tveggja manna ekki blandast saman í klippingu? Hvernig var hirt um afklippur mannshárs?
Var nokkur sérstök varúð viðhöfð í sambandi við hárklippingu eða hárþvott að því, er tók til daga eða útiveru t.d.?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica