Hendur og fætur.

Var tekið mark á misjafnri fingralend manna, t.d. ef baugfingur eða vísifingur voru jafnlangir eða lengri en langatöng? Hvað hétu fingurnir og hvaða þulur voru til um þá? Gat lögun fingranna táknað nokkuð, t.d. hnúastærð? Kannast menn við lófalestur frá fyrri tíð, og hvernig var þá lesið í lófa? Hvað hét þá og táknaði hver lína?
Segið einnig frá merkingu þess, ef tærnar voru afbrigðilegar að lengd eða lögun, t.d ef önnur tá var lengri en stóratá. Höfðu tærnar nokkur sértök nöfn á sama hátt og fingurnir? Táknaði það nokkuð, ef menn höfðu "sundfit" milli sumra tánna?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica