Hespun

Hvernig unnu konur að því að hespa? Höfðu þær alltaf aðstoð við að hespa, þegar hespað var af tvinningarsnældunni? Hvað nefndist hver umferð á hesputrénu (feti, knekk t.d.)?
Hvað nefndist það, ef feti hafði ekki rétt ummál, miðað við hespuna í heild (skammfeti t.d.)?
Hvernig var gengið frá hespunni, þegar hún var tekin af hesputrénu (snarsnúin saman)? Nefndist hespa eitthvað annað (viða t.d.)?
Segið frá geymslu á hespum. Segið frá þvotti á hespum. Var konum illa við, að hespur frysu á þvottastögum?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica