Hesputré

Voru til margar gerðir af hesputrjám? Lýsið þeim svo sem tök eru á. Teiknið einstakar gerðir, ef hægt er. Hvað nefndust einstakir hlutar hesputrés (fætur, fótstykki, uppstandari, hesputré , vindutré, króna, vinda, tittir o.s.frv.). Var hesputrénu hagað eftir því, hvort átti að hespa á það hespu eða vinda af hespu (haft lóðrétt eða lárétt)? Bar hesputréð sjálft nafn í samræmi við þessa notkun (króna, vinda t.d.)? Voru til hesputré með krónu og vindu?
Voru sérstakar festingar fyrir hesputré á bæjum, t.d. holur í rúmstólpum (rúmmörum)? Voru hesputré með tannhjóli algeng? Nefndust þau eitthvað sérstakt (skrepputré t.d.)? Segið frá þeim og notagildi þeirra í sambandi við sölu á bandi eða við vefnað. Voru útlend hesputré í notkun?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica