Heytótt, kuml, heyborg o.s.frv.
Hvað nefndust heystæður (heygeymslur), sem aðeins voru ætlaðar til gjafar á eitt hús og sambyggðar því (heytótt, kuml t.d.)? Lýsið gerð þeirra (byggingu) og stærð. Var innangengt milli þeirra og peningashúss (fjárhúss t.d.), er þau stóðu við? Hvað nefndist stæði heys í heytótt eða kumli? Var nema eitt heystæði í heytótt? Voru rásir með veggjum, að innan, til að taka við vatnsrennsli frá veggjum eða jarðvatni? Voru orðin heytótt og kuml nokkurn tíma notuð um byggingu með þaki? Voru hlaðnar upp heystæður úti í engjalöndum til að geyma hey fram á vetur hvað nefndust þær, og hvað nefndist heyið, sem þar var sett saman (galti, lön t.d.)? Hvernig voru þær varðar fyrir veðrum og ágangi búfjár? Hvernig var hey flutt frá þeim til bæja (á sleðum eða klyfjahestum t.d.)? Voru heytættur og kuml stundum með þaki? Lýsið því. Voru hlaðnar heyborgir (hringlaga) í vetrarhögum fjár, þar sem sauðfé gekk að miklu leyti á útigangi? Lýsið þeim (byggingu og stærð). Voru þá til sérstaklega byggðir gjafahringir fyrir sauðfé í vetrarhögum?

