Heyvinnuföt.

Menn eru beðnir að lýsa klæðnaði heyvinnufólks við hin ýmsu störf og ýmsu aðstæður heyvinnu. Minnist m.a. eftirfarandi atriða: Var viss fatnaður einkum gerður til þess að nota við heyvinnu? Áttu karlmenn t.d. sérstakar hlífðarflíkur, heimaofnar, til að standa í við slátt? Hvað nefndust þær? Lýsið þeim. Áttu konur einnig sérstakar heimagerðar hlífðarflíkur til að vera í, er farið var á engjar eða er staðið var við verk í regni eða köldu veðri? Hvað nefndust þær? Lýsið þeim (efni, sniði o.s.frv.). Klæddust konur sérstaklega óvönduðum treyjum og pilsum, er heyjað var á votlendi (kastföt)? Lýsið þeim. Notuðu konur styttubönd, til að halda uppi pilsum, er gengið var á engjar eða staðið við verk á votengi? Lýsið þeim. Hvernig var engjafatnaði kvenna annars háttað (hyrna, pils, treyja o.s.frv.)?
Bundu karlmenn upp buxur, er þeir stóðu við slátt á votlendi? Hvað var það nefnt? Voru sérstakir sokkar prjónaðir handa engjafólki (togsokkar t.d.)? Lýsið þeim. Voru sokkbolir (án framleista) prjónaðir handa engjafólki? Hvað nefndust þeir? Lýsið þeim. Var algengt að fólk væri berfætt við heyverk?
Þekktist það, að karlmenn stæðu við slátt án ytri buxna (á nærbuxum), er gott var veður? Voru til strigaföt, sem verið var í við heyverk í góðu veðri?
Þekktist það, að skinnstakkar, skinnsokkar eða skinnbrækur væru notuð til hlífðar við sláttuverk, t.d. á votengi eða í regni? Hvenær var fyrst farið að klæðast olíubornum, vatnsheldum hlífðarfötum, er staðið var við sláttuverk í regni?
Lýsið höfuðbúnaði karla og kvenna við heyvinnu. Lýsið hirðingu skóplagga og sokka eftir vinnudag við heyverk. Hafði fólk ótrú á að fækka við sig fötum, er staðið var í hirðingu heys og veður gerðist skúralegt eða regnlegt?
Segið frá öðru, sem varðar fatnað heyvinnufólks. Í spurningaskrá um orf, hrífu og ljá var vikið að vettlingum og hönskum heyvinnufólks, en þó væri ekki úr vegi að biðja menn að víkja nú að þeim í svörum.
Viti menn um, að einhversstaðar séu til ljósmyndir eða teikningar af þess konar klæðnaði eða af fólki í þeim, væri mjög æskilegt að fá um það vitneskju.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica