Hnerrar.
Segið frá venjum og þjóðtrú í sambandi við hnerra. Voru ákveðin orð viðhöfð, er menn hnerruðu? Lýsið því. Hvernig var þessu háttað, er ungbarn hnerraði? Var eitthvað sagt fyrir hönd þess eða í orðastað þess? Fylgja menn enn gömlum venjum í þessu efni? Var því trúað, að hnerri boðaði eitthvað sérstakt? Lýsið því miðað við mismunandi aðstæður (yfir matborði, við verk, o.s.frv.).

