Hreinsun slægna.

Vorstörfum í sveit fylgdi það að hreinsa áburðarleifar úr túnum (afrak, úrrak, óhreina tað), og hefur áður verið um það fjallað í spurningaskrá. Hér er óskað eftir, að menn greini frá annarskonar hreinsun slægna. Lausasteinar og skriður féllu á brekkutún, ár og lækir gátu borið sand og mold á tún og engjar, sandur gat fokið á tún og engjar, búpeningur skildi eftir sig ummerki í slægjum (kúadillur, hrossatöð). Menn eru beðnir að gera grein fyrir hreinsun slægna, þar sem þörf krafði. Hvenær fór hún fram og hvernig að henni var unnið.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica