Hugtök varðandi leik og leiki.

Sögnin að leika sér mun almennt notuð um það, er börn hafa ofan af fyrir sér með öðru en nytsömu starfi. Nafnorðið leikur viðrist geta haft tvíþætta merkingu. Börn sjást að leik, sem fer eftir ákveðinni reglu og einhver spyr: Hvaða leikur er þetta? Til er einnig að tveir strákar fljúgist á í góðu og einhver segir: Þetta er bara leikur. Hvernig hafa menn vanist þssum hugtökum hvað varðar merkingu og e.t.v. merkingarmun? Lýsið því. Hvaða orð voru notuð um leiki, sem ekki voru háðir neinni reglu en áttu þátt í að herða og stæla æskuna (ærast, ólmast, fljúgast á, áflog o.s.frv.)?


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica