Hús og híbýli
Var veðurspá fólgin í frostrósum á glugga? Var talað um góðveðursmóðu á glugga? Var veðurspá fólgin í eldhúsreyknum, potthrími, hlóðaeldi eða logandi ljósi? Dökknuðu málmar undir regn eða rosa?
Voru til "veðurspáir" viðir t.d. í húsum eða amboðum sem notuð voru við heyvinnu? Gat veðurbreyting gert boð á undan sér með einhverri lyktarbreytingu í húsi?
Lýsið öðru varðandi híbýli fólks, útihús eða dauða hluti sem á einhvern veg gat borið með sér væntanlega veðurbreytingu.

