Skrá 10. Barnið, fæðing og fyrsta ár

III. Fæðingin

1. Hvað var það nefnt, er kona tók léttasótt (að taka léttasótt, leggjast á sæng, leggjast á gólf eða annað)?
2. Átti fæðing að ganga betur með nýju tungli en gömlu?
3. Hvað var það nefnt er fæðing gekk illa (að koma hart niður t.d.)? En andstæðan (að koma létt niður t.d.)?
4. Þekktu gamlar ljósmæður nokkur ráð, sem nú eru niðurlögð til að greiða fyrir erfiðri fæðingu (lausnarsteinar t.d.)?
5. Hvernig voru lausnarsteinar notaðir?
6. Hvernig skilja menn orðið "blóðbönd" eða "að liggja í blóðböndum"? Þekkja menn nokkrar sagnir um það?
7. Var heillavænlegt fyrir barn að fæðast á hátíð eða helgum degi?
8. Var nokkur sérstök trú í sambandi við fæðingarstund barns?
9. Var nokkurt mark tekið á því gagnvart ævi barns, hvernig fæðing þess gekk?
10. Var talað um það að barn "væri í læknum", meðan ekki var búið að skilja á milli?
11. Var talað um það að barn "lægi í grasinu" eða "gólaði í grasinu" er það var nýfætt?
12. Var nokkurt mark tekið á fyrsta gráti barns?
13. Var ljós borið yfir nýfætt barn? Í hvaða tilgangi?
14. Segið frá öðru sem varðar fæðingu barns.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica