Skrá 10. Barnið, fæðing og fyrsta ár
II. Ljósmóðir
1. Hvað nefndust konur sem tóku á móti börnum, lærðar eða ólærðar (ljósmóðir, yfirsetukona, nærkona)? Sé um fleiri en eitt nafn að ræða - hvað var algengast?
2. Voru sambærileg nöfn notuð um karlmann, sem tók á móti börnum?
3. Nefndust börn sem sama ljósmóðir hafði tekið á móti, ljósbörn eða ljósubörn hennar?
4. Var orðið "ljósa" almennt notað af börnum og fullorðnum um konu þá sem hafði tekið á móti þeim?
5. Var algengt að ljósumæður tækju börn heim með sér til að annast þau? Hve langan tíma?

