IV. Fylgjan
1. Hvað nefndist fósturhimnan sem fylgdi barninu, að meira eða minna leyti, við fæðingu (sigurkufl t.d.)?
2. Hvað boðaði það fyrir barnið? Fór það ef til vill að einhverju leyti eftir því hvar "kuflinn" var á barninu, að hve miklu leyti hann huldi barnið og hvort barnið var piltur eða stúlka?
3. Hvað var gert við sigurkuflinn?
4. Hvað var gert við barnsfylgjuna (grafin við rekkjustokk móðurinnar, undir þröskuldi, í bæjardyrum eða annars staðar, sett í hlóðavikið, borið yfir hana ljós í kross, móðirin látin stíga yfir hann o.s.frv.)? Var sérstaklega að því gætt að ekkert dýr stigi yfir fylgjuna? Hver annaðist um þetta (ljósmóðirin, faðir barnsins t.d.)?
5. Var barnsfylgjan tengd trúnni á það að hver maður ætti sér fylgju, sem fylgdi honum til æviloka?
6. Hverju var annars trúað um fylgjur manna og tildrög þeirra?

