Skrá 10. Barnið, fæðing og fyrsta ár

IX. Vaggan

1. Voru vöggur almennt notaðar handa börnum að liggja í?
2. Voru vöggur yfirleitt með völtum?
3. Nefndust þær eitthvað annað (rugga t.d.)?
4. Var vagan ekki borin inn í baðstofu eða um hana búið fyrr en barnið var fætt?
5. Hvenær var barnið lagt í vögguna (á fyrsta eða öðrum degi)?
6. Þekkjast sagnir um það að börn hafi átt að leggja í vöggu með aðfalli í fyrsta skipti?
7. Var signt yfir vögguna áður en barnið var lagt í hana? Var nokkuð lesið (haft yfir um leið)?
8. Hvernig var búið um barnið í vöggunni og hvað hétu plöggin sem lögð voru í hana?
9. Var orðið "bos" notað um sérstakt fat (plagg) I vöggu, t.d. lepp með ösku í eða var það notað um rúmið yfirleitt?
10. Kannast menn við orðatiltækið "að viðra úr bosinu" eða "að liggja í bosinu"?
11. Var nokkur hlutur lagður í barnsvöggu til að vernda barnið ef þurfti að skilja það eitt eftir inni (guðsorðabók, skæri t.d.)?
12. Sagði fólk eitthvað sérstakt ef því hraut blótsyrði yfir barni t.d.: "Guð blessi barnið"?
13. Var bannað að vagga tómri vöggu? Hvað lá við ef út af því var brugðið?
14. Signdu gestir yfir ungbarn í vöggu eða heilsuðu því með einhverjum hætti?
15. Segið frá öðru sem varðar vöggu og vöggubarn.


Leita á vefnum


Póstlisti Þjóðminjasafnsins


 

Þetta vefsvæði byggir á Eplica